Sígrænt setur svip sinn á stórkostlega gönguleið gegnt Bryggjuhverfinu

1. mars 2026

Sígrænt setur svo sannarlega svip sinn á svæðið við göngustíginn í Hamrahverfinu gegnt Bryggjuhverfinu. Það hlýnaði í hádegissólinni og úr varð einn af þessum dýrðardögum að vetri þar sem sléttstraujaður Grafarvogurinn sýndi sínar bestu hliðar hvert sem litið var.


Við Grafarvogsbúar erum svo sannarlega heppnir með okkar mögnuðu gönguleiðir í kringum voginn okkar fallega, svo ekki sé minnst á þegar hann er í glitrandi í sólskinsskapi eins og var í dag. - JGH 

Sígrænt setur svip sinn á gönguleiðir við Grafarvoginn, gegnt Bryggjuhverfinu. Sólbráð og skuggi ljósmyndarans á göngustígnum.

Fegurð við fjöru.

Það glittir í grynningar á háfjöru í hádegi. Blautir steinarnir segja sína sögu.

Bryggjan í Bryggjuhverfinu - flotbryggja þar sem fley með fagrar árar bindast traustum böndum á sumrin. Háfjara í hádegi.