Korpúlfarnir verða með frábæra sýningu í Borgum í Spönginni eftir hádegi á morgun
20. nóvember 2026
Það er vel þess virði að líta inn í Borgir í Spönginni á morgun en Korpúlfar, félag eldri borgara í Grafarvogi, verða þar með sölu- og handverkssýningu þar sem boðið verður upp á fjölbreytt handverk félaganna til sýnis og sölu. Sýningin stendur yfir frá klukkan 12 til 16. Starf Korpúlfa er mjög fjölbreytt og mikil athafnasemi í félaginu og sjálfsagt fyrir alla eldri borgara í Grafarvogi að gefa þessu góða félagi gaum og taka þátt í starfsemi þess. - JGH

Korpúlfum er margt til lista lagt. Það er vel þess virði að líta inn í Borgir í Spönginni á morgun og skoða sölu- og handverkssýningu þeirra. Það styttist í aðventuna.


