Áslaug Arna og Þórdís Kolbrún hætta á þingi með skömmu millibili

3. júní 2026

Það kom svo sannarlega á óvart þegar Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir, fyrrum ráðherra flokksins og varaformaður hans, - og þingmaður Reykvíkinga - tilkynnti á Alþingi í morgun að hún hefði ákveðið að láta af þingmennsku aðeins 35 ára að aldri.


Áslaug var þingmaður kjördæmis okkar í Grafarvogi, Reykjavík norður, frá 2016 til 2021 en var þingmaður Reykjavík suður frá 2021 til 2026.


Ekki er nema um einn og hálfur mánuður síðan Þórdís Kolbrún Gylfadóttir, fyrrum ráðherra og varaformaður flokksins, sté í sama ræðustól og tilkynnti þingheimi að hún væri hætt á þingi.


Þórdís Kolbrún, sem er 38 ára, hefur verið skipuð sendiherra í London til fimm ára og tekur þar til starfa 1. ágúst nk.

Það var 20. apríl sl. sem Þórdís Kolbrún Gylfadóttir tilkynnti þingheimi að hún léti af þingmennsku.

Það er óhætt að segja að þingflokkur Sjálftæðisflokksins hafi misst tvær af sínum forystukonum þar sem þær hafa verið áberandi innan flokksins sl. tíu ár og í forystusveit hans þrátt fyrir ungan aldur.


Áslaug Arna Sigurbjörnsdóttir var varaformaður Sjálfstæðisflokksins frá 2017 til 2018 og ráðherra flokksins frá 2019 til 2024.


Þórdís Kolbrún Gylfadóttir var varaformaður Sjálfstæðisflokksins frá 2018 til 2025 og ráðherra flokksins frá 2017 til 2024. Jens Garðar Helgason tók við varaformennsku af henni 2024 þegar hún ákvað að bjóða sig ekki fram í forystusveit flokksins aftur.


Þess má geta að varaformaður flokksins á undan þeim tveimur var Ólöf Nordal en hún lést í febrúar árið 2017 aðeins fimmtug að aldri. Hún var ráðherra flokksins frá 2014 til 2017.


Formaður flokksins, Bjarni Benediktsson, sté frá borði í stjórnmálum í byrjun síðasta árs, þá 55 ára, eftir að hafa gegnt formennsku í flokknum frá 2009 til 2025, eða í sextán ár samfleytt og verið ráðherra frá 2013 til ársloka 2024.


Áslaug Arna bauð sig fram til formennsku í flokknum á síðasta ári ásamt Guðrúnu Hafsteinsdóttur, 56 ára, en tapaði með nokkurra atkvæða mun - og í framhaldinu hélt hún til náms til New York við hinn kunna háskóla, Columbia University.


Það hefur því heldur betur verið brotthvarf úr forystusveit Sjálfstæðisflokksins á aðeins rúmu ári.


Bjarni, Áslaug Arna og Þórdís Kolbrún eru öll hætt í stjórnmálum. - JGH

Varaformaður Sjálfstæðisflokksins á undan þeim Áslaugu Örnu og Þórdísi Kolbrúnu var Ólöf Nordal sem lést aðeins fimmtug að aldri í febrúar 2017.

Bjarni Benediktsson sté frá borði í stjórnmálum snemma á síðasta ári aðeins 55 ára eftir að hafa gegnt formennsku í Sjálfstæðisflokknum frá 2009 til 2025 - eða í 16 ár samfleytt. Nú eru hann, Áslaug Arna og Þórdís Kolbrún öll hætt.